31mars
Nýjasta markmiðið
Núna er komið að því. Núna er að duga eða drepast ég er oft búinn að ákveða að fara að lyfta og ég kemst aldrei almennilega í gang. Núna er ég búinn að kaupa mér kort í ræktinni og er byrjaður að lyfta og búinn að setja upp gróft lyftingarprógram er að fín pússa það þessa dagana. Markmiðið er að komast í 90 kg eftir ár en ég þarf að bæta á mig 16.6 kg til þess. Ég ætla að byrja fyrsta mánuðinn létt og koma vöðvunum í gang. Síðan verður allt sett á fúll swing.Eins og planið liggur núna að þá er planið að lyfta 4 sinnum í viku og taka helgarnar alveg í frí og einn dag í vikunni. Skipta vöðvunum bara vel niður en maður á víst að gera það til að ná sem bestum árangri í þyngingu.
Annað sem að er að frétta að ég fékk hjól frítt. Fínasta hjól. Virkar og ég er korter í vinnuna í staðinn fyrir 50 mín labbandi sem að er mjög þægilegt. Hjól er líka möst þegar að maður er í Danmörku. Hjólið verður notað til að koma mér í form en að hjóla er gríðarlega góð æfing.
