13júní

Vá hvađ ég skeit á mig.

Ég sem að var svo ákveðinn í að taka mynd á dag og skrifa blogg á dag þangað til að ég færi út.

En hvað um það að þá er ég sestur hérna niður og ætla að reyna að skrifa eitthvað fyrir diggann lesanda en svo virðist vera sem að Gísli sé eini lesandinn á þessari yndislegu síðu sem að kemur mér reyndar ekkert á óvart. Gæti reyndar alveg verið að Maggi droppi hérna inn við og við líka sérstaklega vegna þess að hann fékk þessa sætu mynd af sér beint á síðuna.

Það eru 50 dagar þangað til að ég fer út....shit....það er allt að bresta á. Ég veit ekki hvort að það er stress í mér útaf þessu, spenningur, tilhlökkun eða allt sé bara að springa. Ég bara hreinlega veit það ekki. Ég veit samt að ég á eftir að sakna einhverra af vinum hérna á Íslandi samt ekki allra, en samt svona flestra. Ég get samt lofað ykkur því að ég mun blogga frá DK, spurning hvort að ég stofni aðgang á youtube og fái mér Webcam og videobloggi. Það gæti orðið gaman.

Ég seldi loksins bílinn minn, allir peningarnir fóru í lánið á honum og yfirdráttinn minn. Sniff sniff. En ég er alveg on the way að verða skuldlaus. Það gerist alveg einhvern tímann vona ég. Ég sé fyrir mér gaurinn í bíómyndatreilerunum segja "ONE DAY" geispa "SveinnP woke up and he was SKULDLAUS" "men who the fuck is SveinnP"

En hvað um það að þá leiðist mér alveg gífurlega akkúrat núna og ég hef ekkert að gera. Mig vantar eitthvað að gera. Klukkan er 2 að nóttu hvernig væri að fara að sofa?

Djöfull hata ég andvöku nætur.

Ég læt mynd af Inda fylgja með þessari döpru færslu

Drizza
13. júní 2007 klukkan 02:14
Sveinn Pálmar Einarsson
Vćl
3 athugasemdir
04júní

Byrjum á ţessari


Maggi bjögg




Maggi fær að vera fyrstur í pic a day þótt ég hafi ekki tekið þessa mynd í dag að þá ætla ég samt að setja hana inn fyrst. Mig minnir að það hafi verið þetta kvöld sem að við enduðum í Guitar Hero heima hjá Dabba
04. júní 2007 klukkan 02:46
Sveinn Pálmar Einarsson
1 athugasemd
04júní

Afhverju blogga ég aldrei?

Það er góð spurning. Reyndar sko að þá er ég farinn að hata kerfið á moggablogginu.Damörk Það er FUCK leiðinlegt að vinna á því. Ég kann ekki rassgat á þetta drasl. Ég er nú bara að spá í að færa mig aftur á bloggar og hafa gaman af.

Ég hef lengi spáð í að hafa svona "Picture a day" dæmi í gangi á flickr hjá mér. Ég ætti kannski að massa það bara og kannski hafa blogg á hverjum degi líka. Ég myndi samt ekki nenna að skrifa eitthvað massa langt alla daga það væri svo fuck leiðinlegt og ég myndi gefast upp.

En eftir 2 mánuði eða til að vera nákvæmur 2. ágúst mun ég fara úr landi og gerast Dani, sem að mér finnst alveg mjög spennandi. Planið er semsagt að fljúga út um morguninn 2. ágúst og vera í köben fram að 5. ágúst og taka þá lestina til Viborg. Ætli maður krassi ekki á gólfinu hjá Birnu frænku í þessa daga sem að maður verði í Köben.

En ég ætla bara að starta Pic a day núna áður en að ég fer út og blogga eitthvað í kringum hverja mynd. Þetta verður feitt shit.
04. júní 2007 klukkan 00:52
Sveinn Pálmar Einarsson
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sveinn Pálmar Einarsson
  • Stađur: Ĺrhus
  • Atvinna: Nemi/ljósmyndari
  • Hjúskaparstađa: Frátekinn
  • Um mig: Ég er ungur drengur ađ nema ljósmyndun í Danmörku.
  • Annađ: Lífiđ er yndislegt ég geri ţađ sem ég vil
    www.flickr.com
    This is a Flickr badge showing public photos from SveinnP. Make your own badge here.

Auglýsing

Atburđarteljari

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...