04júní

Byrjum á ţessari


Maggi bjögg




Maggi fær að vera fyrstur í pic a day þótt ég hafi ekki tekið þessa mynd í dag að þá ætla ég samt að setja hana inn fyrst. Mig minnir að það hafi verið þetta kvöld sem að við enduðum í Guitar Hero heima hjá Dabba
04. júní 2007 klukkan 02:46
Sveinn Pálmar Einarsson
1 athugasemd
04júní

Afhverju blogga ég aldrei?

Það er góð spurning. Reyndar sko að þá er ég farinn að hata kerfið á moggablogginu.Damörk Það er FUCK leiðinlegt að vinna á því. Ég kann ekki rassgat á þetta drasl. Ég er nú bara að spá í að færa mig aftur á bloggar og hafa gaman af.

Ég hef lengi spáð í að hafa svona "Picture a day" dæmi í gangi á flickr hjá mér. Ég ætti kannski að massa það bara og kannski hafa blogg á hverjum degi líka. Ég myndi samt ekki nenna að skrifa eitthvað massa langt alla daga það væri svo fuck leiðinlegt og ég myndi gefast upp.

En eftir 2 mánuði eða til að vera nákvæmur 2. ágúst mun ég fara úr landi og gerast Dani, sem að mér finnst alveg mjög spennandi. Planið er semsagt að fljúga út um morguninn 2. ágúst og vera í köben fram að 5. ágúst og taka þá lestina til Viborg. Ætli maður krassi ekki á gólfinu hjá Birnu frænku í þessa daga sem að maður verði í Köben.

En ég ætla bara að starta Pic a day núna áður en að ég fer út og blogga eitthvað í kringum hverja mynd. Þetta verður feitt shit.
04. júní 2007 klukkan 00:52
Sveinn Pálmar Einarsson
Engin athugasemd
28desember

Má ekkert?

Meiga fyrirtæki ekki lengur gefa neitt eða senda neitt frá sér án þess að það séu Alcan og djöfullinnmútur eða dulbúnar auglýsingar?
Það sem að er mikið rætt þessa dagana er SMS skeyti sem að í stóð nákvæmlega: Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Starfsfólk Dominos. Þetta fékk ég klukkan 16:50  á meðan að ég var í sturtu. Heitasta helvíti Dominos truflaði mig á meðan að ég var í sturtu....SHAME ON YOU...hey kommon. Þetta snerti mig alveg voðalega lítið þetta SMS ég las það og hugsaði "en sætt af þeim." Meiri hugsun var það ekki. Fólk var að kvarta undan því að það hefði verið truflað í jólamatnum með þessu SMS-i. Fyrir mér er jólamaturinn á aðfangadag heilagur, þess vegna set ég símann minn á SILENT og er EKKI með hann á mér. Það getur bara ekki verið að einhver þurfti svona ógurlega að ná í mig á aðfangadag kl 18. Sá aðili getur beðið þangað til að ég er búinn að losa beltið og hneppa frá eftstu tölunni á buxunum mínum og er slakur uppí sófa.
Síðan er það hitt dæmið. Hafdís Sigmarsdóttir húsmóðir í Hafnafirðinum var eitthvað óánægð með það að fá diskinn með Björgvini Halldórssyni sendan heim í pósti ásamt áminningu um að á næstu vikum myndi Alcan kynna starfsemi sýna betur fyrir íbúm í bænum. Semsagt stóra álverið í Hafnarfirði hefur áhuga á að kynna bæjarbúum starfsemi sýna áður en það færi að kjósa um hvort ætti að stækka álverið eða ekki. Það eru semsagt kosningar framundan. HVAÐ Í FJANDANUM GERIST Í HVERT SKIPTI SEM AÐ ÞAÐ ERU KOSNINGAR Á ÞESSU SKERI? Póstkassinn minn bilast innhólfið mitt á e-mailinu bilast, síminn minn bilast og það er alltaf verið að gefa mér eitthvað og bjóða mér í hin og þessi partý. Ég man ekki eftir því að þetta hafi verið kallaðar mútur. Ég held að hún Hafdís sem að segir t.d. í þessari grein "Alcan er með þessu að reyna að hafa bein áhrif á bæjarbúa um fyrirhugaða stækkun álversins í straumsvík"  Ég er ekki alveg að sjá það sem að hún er að meina en ég er ekki það heimskur að ef að ég fæ geisladisk að þá kjósi ég þann einstakling í blindni. Það er bara ekki rétt. Ofan á þetta allt saman er fyrirtækið að minna á sig, stærsta fyrirtæki Hafnarfjarðar er að leyfa Hafnfirðingum að njóta góðs af miklum gróða fyrirtækisins með einum geisladisk. Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Alcan fær líka að eiga nokkur orð og hann segir "Tilgangur gjafarinnar er tvíþættur: að slá botn í afmælisár álversins og láta fólk vita að á næstu vikum muni þeir kynna starfsemi fyrirtækisins fyrir komandi kosningar um stækkun álversins.
Nennir einhver að senda einmanna húsmóðirinni snuð og diskinn sem að henni langaði í um jólin.
28. desember 2006 klukkan 16:16
Sveinn Pálmar Einarsson
2 athugasemdir
14desember

Bubbi 060606

Ég var eitthvað að fikta í iPodnum hennar mömmu áðan og sá að húnBubbi á tónleikum með Utangarðsmönnum var með 060606 tónleikadiskinn á honum. Mamma fékk ekkert iPodinn eftir það fyrr en hún rétti mér diskinn. Ligg hérna uppí rúmi núna og er að setja hann inná tölvuna hjá mér. Já ég veit ég er að afrita tónlist. Til hvers að eiga 2 diska á sama heimilinu? En allavegana djöfull hefði ég viljað vera þarna en ég er að finna lög með Bubba sem að ég hef aldrei heyrt áður eins og "Engill í rólu" geðveikt lag "Hamingjan er krítarkort" með GCD sem að var allsvaðalegur dúett. Ég vissi samt ekki að Bubbi hefði verið í bandi sem að hét MX-21, gerðu fullt af lögum sem að ég elska eins og "Serbann" og "Gaukur í klukku" og aðra eins slagara. Pottþétt ein flottasta afmælisveisla sem að haldin hefur verið á Íslandi.
Djöfull sé ég eftir því að hafa ekki fengið mér miða...ég er sár útí sjálfan mig.
Útgáfan af "Stúlkan sem að starir á hafið" með Heru alveg GEÐVEIK

En ég er allavegana með diskinn í hlustun núna í sárabætur.
DVD tónleika útgáfan er á jólagjafalistanum!!!!
14. desember 2006 klukkan 06:35
Sveinn Pálmar Einarsson
Almennt
4 athugasemdir
12desember

Batnandi fólki er best ađ lifa

Batnandi fólki er best að lifa ég tek ofan fyrir þeim sem að hringdu.


"Nokkrir þeirra sem voru á ferð á Vesturlandsvegi sunnudaginn síðastliðinn þegar banaslys varð þar höfðu samband við lögregluna í Reykjavík í gær og báðust afsökunar á framkomu sinni. Var þetta sama fólk og hafði áður kvartað yfir því að veginum hefði verið lokað, bæði á staðnum og með símhringingum. Lögreglan fagnar þessu framtaki og telur að batnandi fólki sé best að lifa.

Áður hefur komið fram að allmargir sýndu lítinn skilning á því að þar hefði orðið alvarlegt slys en við það bættist að aðstæður á slysstað voru erfiðar. Veður var vont og skyggni slæmt. Lögreglan segir, að ekki hafi verið mögulegt að liðka fyrir umferð fyrr en frumrannsókn lauk. Segist lögreglan vona, að eftirleiðis sýni vegfarendur meiri skilning þegar aðstæður sem þessar koma upp."

12. desember 2006 klukkan 19:38
Sveinn Pálmar Einarsson
Engin athugasemd
12desember

"Sýndu enga biđlund á slysstađ"

Hvað er að gerast á þessu landi? eru allir að flýta sér?

"Ótrúleg óþolinmæði og dónaskapur vegfarenda mætti lögreglumönnun og þeim sem komu fyrstir á vettvang að banaslysi sem varð á Vesturlandsvegi í gær. Fólk ók jafnvel í gegnum vettvanginn áður en lögregla kom á staðinn. Lokað var fyrir umferð á Vesturlandsvegi í um tvær klukkustundir eftir alvarlegt umferðarslys þar sem einn lést og annar slasaðist. Ekki tókst að beina umferð annað.

Aðstæður voru erfiðar og veðrið var vont. Margir þurftu að bíða á meðan reynt var að hlúa að og bjarga þeim slösuðu. Flak annars bílsins var á miðjum vegunum og því ekki hægt að beina umferð framhjá fyrr en búið var að fjarlægja það. Eins þurfti að safna rannsóknargögnum svo hægt verði að skýra orsakir slyssins. Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir vel mega skoða hvort lögregla geti komið upplýsingum betur til vegfarenda með einhverjum hætti. Brýnna sé þó að fólk dusti rykið af þolinmæðinni og sýni virðingu og kurteisi.

Og það voru fleiri en lögreglan sem urðu fyrir dónaskap viðstaddra, jafnvel frá þeim sem vel máttu sjá hversu alvarlegt slysið var. Dæmi voru um að fólk færi í gegnum slysavettvang á bílum sínum auk þess sem hnefar voru steyttir og bílflautur þandar."


Hvað er að?!? Ég get ekki einu sinni komið orðum að því hvað ég varð reiður þegar að ég las þetta. Þetta er FUCKING alvarlegt umferðarslys og fólk er með steyting og vesen GADEM er ekkert heilagt fyrir fólki? Þetta er víst ekki í fyrsta skipti sem að Slökkvilið og Lögreglan lenda í svona.
Ég meina kommon hversu andlega fatlaður þarftu að vera til þess að detta það í hug að keyra í GEGNUM slysstað. 2 ónýtir bílar nokkrir slasaðir fullt af blóði jafnvel einhver dáinn nokkuð mikið af fólki í panikki og jæja ég ætla bara að steyta hnefann og flauta og keyra bara í gegn.

Ég segi stríð á hendur heimskra og ökumanna!!!

12. desember 2006 klukkan 17:00
Sveinn Pálmar Einarsson
Engin athugasemd
07desember

Larry Bird 50 ára

Ég varð að gefa Larry Bird smá svona pláss á blogginu fyrst að þetta legend er Bördarinnbúinn að ná hálfri öld i aldri.

Bird spilaði með Boston Celtics allan sinn feril sem að spannað 13 ár eða frá 1979-1992.

Higlights á ferlinum
  • NBA Rookie of the Year (1980)
  • NBA Most Valuable Player (1984-86)
  • All-NBA First Team (1980-88)
  • All-NBA Second Team (1990)
  • NBA All-Defensive Second Team (1982-84)
  • Twelve-time NBA All-Star (1980-88, 1990-92)
  • NBA All-Star Game MVP (1982)
  • Long Distance Shootout Winner (1986-88)
  • BördarinnNBA Finals MVP (1984, 1986)
  • Scored 21,791 points (24.3 ppg) in 897 professional games, including a career-high 28.1 ppg in 1987
  • Scored a career and team-high 60 points against the Atlanta Hawks in New Orleans on March 25, 1985
  • Led the NBA in free throw shooting (1984, 1986, 1990)
  • NBA championships with the Boston Celtics (1981, 1984, 1986)
  • In a 12-year time span, Bird teamed with Kevin McHale and Robert Parish to form
    one of the greatest frontlines in professional basketball history
  • The trio compiled a 690-276 record, won nine Atlantic Division titles and five
    Eastern Conference championships
  • NBA 50th Anniversary All-Time Team (1996)
  • Member of gold medal-winning U.S. Olympic Team (1992)
  • Named Indiana Pacers President of Basketball Operations on July 11, 2003

    En ég óska Bird innilega til hamingju með daginn og má þessi maður eiga yndislegan afmælisdag.
  • 07. desember 2006 klukkan 18:28
    Sveinn Pálmar Einarsson
    1 athugasemd
    06desember

    Lćst blogg

    Það fer soldið í pirrurnar á mér að fólk skuli læsa blogginu sínu. Ég tek það pínu persónulega, það er svona eins of fólk vilji ekki að ég lesi það sem að það skrifar. AFHVERJU!?!?!?! Gráta
    Ég er sár.

    En annað að þá er ég við skrifborðið mitt í vinnunni og akkúrat núna er svona dauður tími allir í mat. Það er algjör þögn hérna inná skrifstofunni fyrir utan 2 útlendinga sem að voru að labba inn til að fá sér kaffi. En það er stundum sem að ég sest inná kaffistofu og ætla mér að fá mér 1 bolla og lesa blaðið. Slappa aðeins af eins og það heitir. Það sem að er svo skrýtið að stundum er 2 að tala saman íslensku og það böggar mig ekki neitt þetta flýtur bara, en stundum eru útlendingar að tala saman aðalega frá austur-evrópu. Þeir tala oftast Pólsku og þegar að þeir byrja þá er afslöppunin búin. Ég fæ hausverk og þetta dregur að mér orku. Ég fatta þetta ekki ætli þetta sé útaf því að ég skil ekki það sem að þeir eru að segja? Ég næ þessu ekki...þetta böggar mig. Þetta er orðið þannig að ef að það eru útlendingar þarna inni þá sest ég ekki inn til þess að lesa blaðið og slappa af. Ég sleppi því að því að ég næ ekki að einbeita mér.

    Það er svo margt sem að veltur um í hausnum á mér þessa dagana eins og þetta með suðurlandsveginn. Ég veit ekki hvað skal gera. Ég meina þetta er oftast það sama sem að er þegar að það verður einhver árekstur. Hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur, hraðakstur svo má ekki gleyma hraðakstrinum. Lækkum okkur aðeins niður það er ekkert töff við það að keyra á 130+. Ég reyni oftast að halda mér við hámarkshraða nema eins og á sæbrautinni og miklubrautinni þegar að umferðarhraðinn er meiri þá reynir maður nú að keyra á þeim hraða.
    06. desember 2006 klukkan 18:25
    Sveinn Pálmar Einarsson
    Engin athugasemd
    05desember

    Hćkkun á bílprófsaldri

    Núna er frumvarp á þingi um hækkun á bílprófsaldri sem að reyndar skiptir mig engu máli. Ég eiginlega tek ekki afstöðu til þess. En það er annað í sambandi við þetta sem að böggaði mig smá sem að var í umræðunni fyrst þegar að þetta frumvarp kom fram. Það var semsagt pæling hjá einhverjum framsóknarmanni(hvað annað) að strákar skildu fá bílpróf 18 ára en stelpur 17 ára vegna seinþroska drengja. Ég veit reyndar að feministafélagið myndi hoppa hæð sína í loft upp af gleði, þar sem að stefna þeirra fyrir mér virðist vera að koma körlum af plánetunni og hafa bara konur á jörðinni.
    Ef að dæminu hefði verið snúið við hefði allt brjálast.

    Ég styð JAFNRÉTTI allir jafnir.
    Tökum nokkur dæmi um svona jafnréttismál sem að hafa böggað mig. Karl og kona sóttu um vinnu, segjum bara Jón og Gunna man ekki nákvæmlega hvaða vinna þetta var en það skiptir ekki öllu. Gunna var háskólamenntuð og hafði litla sem enga starfsreynslu í starfinu. Jón var háskólamenntaður plús eitthvað svona auka pakka dót og með lengri starfsreynslu. Dæmið er einfalt Jón fær starfið. Nei það var ekki svo einfalt þetta var kært og Gunna fékk starfið byggt á því að það hefði verið horft framhjá henni vegna þess að hún var kona. Er þetta jafnrétti?

    Í mínum fullkomna jafnréttisheimi er ekki spurt hversu mörg prósent eru karlar og hversu mörg prósent eru konur í nefndum og yfirmanna stöðum og annað slíkt. Þegar að það er verið að ráða í vinnu er ekki spurt hvers kyns þú ert. Kyn skiptir bara ekki máli, nema kannski með íþróttatest í inngöngu í þannig störf þar sem að reynslan sýnir að karlmenn eru einfaldlega sterklegabyggðari fyrir íþróttir. Kíkið bara á heimsmetin í karlaflokki og síðan í kvennaflokki. Konur í dag eru líklegri til að mennta sig en karlar. Gott eða vont? mér finnst þetta slæmt. Þá meina ég þannig að við karlmenn ættum að taka okkur saman í andlitinu og mennta okkur. (segir menntaðasti maður norðan alpafjalla).


    En ég ætla að flytja til DK og taka sveinsprófið í ljósmyndun þar. Kannski að maður læri eitthvað í framhaldi afþví það er aldrei að vita. En planið er að fara næsta haust. Veit ekki hvernig það fer en vonandi tekst það. Mig vantar svona eins og milljón þá er ég góður. Á einhver milljón til að gefa mér?

    05. desember 2006 klukkan 06:12
    Sveinn Pálmar Einarsson
    4 athugasemdir
    04desember

    Allt í gangi

    Ég var einu sinni MJÖG þver drengur sem að gerði mikið af því að standa fast á mínu og hlusta ekki á rök annara þó svo að það væri alveg svo ótrúlega augljóst að ég hefði rangt fyrir mér og allir í kringum mig sáu það nema ég. Ég hef einhvern veginn með þrotlausri vinnu tekist það að hlusta á rök annara og spá aðeins í því hvað ég er að segja áður en að ég held áfram. Vegna þess að stundum hefur viðmælandi minn bara rétt fyrir sér og ég rangt fyrir mér. Það hefur gerst spáið í því.
    Það fer einmitt alveg ótrúlega í pirrurnar á mér þegar að ég er að tala við fólk um eitthvað málefni sem að við erum ekki sammála um og hinn aðilinn vill bara ekki hlusta á það sem að ég hef að segja, svona fólk sem að hefur bara rétt fyrir sér og nennir ekki einu sinni að hlusta á mann. Það kemur nú alveg fyrir að ég hef rangt fyrir mér en hann rétt fyrir sér en það skiptir samt ekki máli. Ég hef rétt á því að tala. Það getur verið rosalega erfitt að sýna svona fólki þolinmæði. Ég vona að þið fyrirgefið mér fyrir að hafa einu sinni verið fíbl og ég vona að þið segjið mér að halda kjafti næst þegar að ég læt svona.

    En úr einu í allt annað, þá ætlar '86 árgangurinn úr Háteigsskóla að hittast á Kaffi Reykjavík 29. desember á slaginu
    20:00 og eiga skemmtilegt kvöld saman og njóta þess að vera aftur saman. Það verður hlaðborð og eitt glas af hvítu, rauðu eða bjór með á skitinn 2000 kall. En það verður að vera búið að borga á þorláksmessu á reikning 0101-26-023456 kt. 261186-2259 og skýring greiðslu skal vera nafn þitt. Maturinn er BARA fyrir nemendur og kennara '86 árgangsins úr Háteigs þannig að other fuckers fuck off þangað til seinna um kvöldið. Endilega ef að þið viljið frekar upplýsingar kíkið á síðu bekkjarins. Ég ætla að mæta það er á hreinu og það er eins gott að við alkarnir fáum eitthvað prósentu laust fyrir 2000 kallinn. En ekkert fucking kjaftæði þið mætið og ekkert væl.

    04. desember 2006 klukkan 06:26
    Sveinn Pálmar Einarsson
    Almennt, Vćl
    5 athugasemdir

    Ađalvalmynd

    Prófíll

    • Nafn: Sveinn Pálmar Einarsson
    • Stađur: Ĺrhus
    • Atvinna: Nemi/ljósmyndari
    • Hjúskaparstađa: Frátekinn
    • Um mig: Ég er ungur drengur ađ nema ljósmyndun í Danmörku.
    • Annađ: Lífiđ er yndislegt ég geri ţađ sem ég vil
      www.flickr.com
      This is a Flickr badge showing public photos from SveinnP. Make your own badge here.

    Auglýsing

    Atburđarteljari

    Atburđarteljari

    Innskráningar kubbur

    Teljari

    • Heimsóknir í dag: ...
    • Ţennan mánuđ: ...
    • Frá upphafi: ...