31mars

Núna er komið að því. Núna er að duga eða drepast ég er oft búinn að ákveða að fara að lyfta og ég kemst aldrei almennilega í gang. Núna er ég búinn að kaupa mér kort í ræktinni og er byrjaður að lyfta og búinn að setja upp gróft lyftingarprógram er að fín pússa það þessa dagana. Markmiðið er að komast í 90 kg eftir ár en ég þarf að bæta á mig 16.6 kg til þess. Ég ætla að byrja fyrsta mánuðinn létt og koma vöðvunum í gang. Síðan verður allt sett á fúll swing.
Eins og planið liggur núna að þá er planið að lyfta 4 sinnum í viku og taka helgarnar alveg í frí og einn dag í vikunni. Skipta vöðvunum bara vel niður en maður á víst að gera það til að ná sem bestum árangri í þyngingu.
Annað sem að er að frétta að ég fékk hjól frítt. Fínasta hjól. Virkar og ég er korter í vinnuna í staðinn fyrir 50 mín labbandi sem að er mjög þægilegt. Hjól er líka möst þegar að maður er í Danmörku. Hjólið verður notað til að koma mér í form en að hjóla er gríðarlega góð æfing.
26janúar
Ég er bara farinn að komast soldið á netið hjá henni Árnýju núna þessa dagana. Skvísan fékk sér bara tengingu og allt saman. Ætli maður neyðist þá ekki til þess að skrifa blogg.
Tölvugreyjið mitt gaf samt algjörlega upp öndina hvað myndvinnslu varðar og það stefnir allt í það að ég geti ekki unnið eina einustu mynd sem að ég tek í þessum gamla góða skrjóð. Ég get verið á netinu samt og horft á bíómyndir og svona sem að er plús útaf fyrir sig. Það er semsagt komið að því að ég verð að kaupa mér nýja tölvu og alveg bara sem fyrst. Spurningin er samt hef ég efni á því? Nei. En það er hægt að gera ýmislegt til þess að redda því. Það stefnir allt í að ég kaupi mér nýja tölvu næstu eða þar næstu mánaðarmót. Spurningin er á milli iMac eða Macbook Pro, veit samt ekki alveg hvora tölvuna ég ætla að kaupa. Mig langar í lappa en mig langar samt eiginlega líka í borðtölvu. Þetta er rosa pæling sem að er í gangi hjá mér. Ég held að ég sé nú samt alveg kominn á það að kaupa mér 20" iMac.
Annars er ég ennþá hjá Árnýju, það fer vonandi að styttast í íbúðina þannig að ég geti flutt héðan út og í mína eigin íbúð. Þá taka skemmtilegheitin við.
Mig vantar sófa, sjónvarp, borðstofu borð og stóla, allt í eldhúsið, skápa í svefnherbergið og margt fleira. Ég reikna með að mánaðarmótin mars-apríl verði ég búinn að koma mér almennilega fyrir.
Kira á sófa sem að við getum vonandi tekið en hann er bara svo lítill og ljótur að ég reikna með að kaupa nýjan fljótlega en ætli maður byrji ekki á honum. Ég held líka að foreldrar hennar eigi borðstofuborð og eitthvað samansafn af stólum sem að við gætum jafnvel notað. Þetta verður svona soldið saman safn af dóti fyrst um sinn en það er bara gaman. Næstu ár fara svo í það að sanka að sér búslóð og drasli.
Ég fíla mig soldið eins og ég sé orðinn stór núna. Kominn með eigin íbúð og er að spá í allskonar svona fullorðinshlutum eins og að fara í Ikea og versla dót í eldhúsið og svona. Ég hef ekki verið mikið fyrir að versla eitthvað eldhússtöff í gegnum árin. Þetta er samt rosa gaman verð ég að segja.
15janúar
Jæja það er soldið langt síðan að maður nennti að henda inn færslu hingað.
Ég komst loksins á netið einhversstaðar en ég sit núna á Baresso Coffe við Banegården hérna í Århus(þar sem að framtíðarheimili mitt er(Århus)).
Það er nú töluvert sem að getur komið fram í þessari færslu en ég veit ekki hvort að ég nenni að eyða of miklum tímum í skriftir þar sem að ég þarf að borga fyrir að vera á netinu. Ég er samt orðinn alltof góðu vanur venjulega er allstaðar frítt net á íslandi, en það er auðvitað ísland.
En jæja best að koma sér að efninu. Ég var auðvitað búinn að redda mér vinnu áður en að ég kom út og ég er að vinna hjá Samskip í vöruhúsinu þeirra hérna úti. Mitt starf er semsagt að vera úti þar sem að bílarnir koma og taka á móti pöllum sem að eru að fara í útflutning og skrá það og allt svoleiðis, sé semsagt um allt móttökuferlið. Vinnutíminn er glæsilegur en hann er frá 7-16 og yfirvinna hérna þekkist varla nema kannski svona 2-3 tímar á fimmtudögum sem að er ekkert nema hamingja. Ég er búinn að lenda í nokkrum kjánalegum verkefnum eins og tæma 20 feta gám sem að var handstaflað í en ekki sett inná brettum og bera það út og setja í annan 20 feta gám?!?!?
Íbúðin komin á hreint líka. Semsagt í vikunni áður en að ég flaug út að þá fann Kira eitthvað og ég kontaktaði þá á mánudeginum sem að ég kom út og fór að skoða það kvöld, sagði já á þriðjudeginum skrifaði undir á sunnudeginum og flyt inn 15 febrúar. Ég bý núna í leiguherbergi í kjallaraherberginu þar sem að Árný frænka býr sem að er mjög næs.
Heimilisfangið hjá mér þegar að ég flyt inn verður:
Sveinn Pálmar Einarsson
Marstrandsgade 36 stuen
8000 Århus
Denmark
Ég veit svo sem ekki neitt fleira sem að ég nenni að tjá mig um að svo stöddu.
04nóvember
"So no one told u life would gonna be this way" Bara fyrir Gísla. Ég er semsagt í Friendds geðveiki þessa dagana er reyndar bara með fulla 1. seríu en hún fer að verða búinn og þá taka við stakir þættir hingað og þangað útum allar seríur. Kláraði Arrested Development seríurnar 3 um daginn og ég komst að því að mig vantar nokkra þætti í lokinn á 3 seríu söckar mjög mikið. Kláraði samt Dexter seríuna um daginn og FUCK það er góð sería. En nóg um sjónvarpsseríur.
Ég er aðeins farinn að hreyfa á mér rassgatið aftur farinn að lyfta og hlaupa aðeins. Er að spá í að koma mér í form í janúar er nefnilega að spá í að koma með comeback í körfuna. Spá í hvort að maður eigi ekki bara að finna sér eitthvað lið hérna í dönsku 2. deildinni. Þegar að ég verð kominn til köben fer ég að skáta einhver lið sem að verða nálægt mér. Ég bara sakna þess að vera með bolta í mér. Ég held að það séu 3 ár síðan að ég æfði síðast. En já maður verður að koma sér í eitthvað form víst áður en maður fer að sprikla aftur.
En nóg í bili.
31október
Jæja núna ætla ég að reyna í annað skiptið að blogga. Ég var semsagt búinn að skrifa MJÖG langt blogg um daginn og svo rakst ég í leiðindatakka á lyklaborðinu mínu sem að ég hef aldrei í sjálfum sér notað en það er svona afturábak takki svo er líka svona áfram takki. Þeir fara gríðarlega í taugarnar á mér enda nota ég þá aldrei.
En ég man ekkert um hvað ég var að skrifa þá en ég man bara að ég var rosalega pirraður afþví að ég var búinn að leggja mig mikið fram við að skrifa þetta blogg.
Samt margt búið að gerast síðan fyrir umþað bil 3 vikum. Ég fór til köben til að leita mér að samning sem að gekk svona upp og ofan ekkert í sjálfum sér komið útúrþví en það kemur allt saman. Ég er núna bara í íbúðarleit í köben sem að gengur ekkert alltof vel get ég sagt ykkur en það hefst vonandi á endanum. Mig dreymir um að búa í lítilli 2 herberja íbúð á góðum stað í köben. Það væri úber næs vera með stóra og fína stofu til að geta chillað í. Ég er líka að vinna í því að fá Kiru til að ákveða sig hvar í Danmörku hún vill búa en ég er mikið að vinna í því að hún komi með mér til köben.
Það fer líka að styttast í það að ég komi til Íslands en ég mun lenda í Keflavík 21. desember kl 00:35, þá mun ég mjög líklega vilja fara beint heim að sofa því að þá verð ég búinn að vera að ferðast LENGI. Þarf að taka lest frá Viborg sem að tekur rúma 5 klukkutíma. En síðan verður mjög líklega lagt af stað á laugardagskvöldinu og reynt að hitta á einhverja vel valda einstaklinga. Ég veit að þið saknið mín.
En já hvað sem að öllu líður að þá er lífið í DK yndislegt og ég nenni þessu ekki lengur see you later.
Peace
11október
Jæja langt síðan að ég henti inn færslu á þetta blessaða blogg. En ég þarf einmitt að vera að taka til í herberginu mínu og troða ofan í töskur þar sem að ég er að fara til Haderslev á morgun og svo er það köben á sunnudaginn.
Í Haderslev búa foreldrar hennar Kiru, jesús foreldra hittingur í fyrsta skipti. Ég verð nú alveg að viðurkenna að það er smá hnútur í mallanum, en eins og alltaf fer þetta vel. Ég reikna með að sjarmera þau uppúr skónum. Ég er svo mikill sjarmör eins og þið vitið vonandi öll.
Á sunnudaginn er það svo Köben reikna með að leggja af stað snemma allavegana áður en að pabbi kemur til Köben svo að ég geti verið búinn að henda af mér töskunum og svona áður en að hann kemur. Verður ekki leiðinlegt að hitta kallinn, það eru að verða 3 mánuðir síðan að maður sá hann síðast.
Reikna svo með því að hitta Ebbu og Indriða, Steina Kára og svo Röggu. Man ekki eftir fleirum í augnablikinu sem að búa í Köben sem að ég þekki.
Annars er nú lítið merkilegt svo sem búið að gerast hérna í Viborg. Var að teikna alla vikuna og jesús minn hvað ég kann ekki að teikna, ég þakka guði fyrir að þessi vika er búin en kennarinn okkar ákvað að kenna á miðvikudaginn og gefa okkur frí í staðinn á morgun. Ekki slæmt.
Miðvikudagarnir hérna í skólanum eru samt alveg frekar skrýtnir oftast er nú frí en stundum gerir maður nú eitthvað. Síðasta miðvikudag fórum við á slökkvistöðina sem að var töff, fengum að slökkva elda með teppi og allt. Fór líka í viðtal hjá kennaranum mínum sem að heitir Stig, sem að mér finnst endalaust fyndið en fyrir ykkur nördana sem að horfið á Top Gear að þá vitið þið hvað ég er að tala um. Hann sagði nú bara að ég væri góður ljósmyndari en ég þyrfti samt að bæta mig í Photoshop.
Það má nú ekki gleyma hafursárahittingnum þann 27. okt hendi inn heitum myndum af þeim hitting.
En já ekkert meira að segja að sinni nema jú Eiríkur Þór Hafdal til hamingju með strákinn. Ég vona að ykkur fjölskyldunni líði vel og þið hafið það gott.
01október
Jesús það er kominn október og ég er með flugnabit...hvað er í gangi?
Ég er með eitt á fætinum þarna við hliðiná kúlunni á mjúka svæðinu...sininni eða hvað sem að þetta er og haltra. Eitt rétt fyrir ofan hnéð og annað á mjöðminni. Kira á samt eitthvað krem á þetta og ætlar að koma með það eftir smá. ÞETTA ER SAMT SVO VONT. ARG....
Ég var líka að komast að því að hálf ættin á heima á jótlandi. Árný frænka er í Aarhus, Sigurbjörg er í Aalborg, Sindri á Hrossanesi og Hjalti einhversstaðar...sem að ég er reyndar ekki viss hver er en ég kemst að því vonandi.
Lítið samt sem að ég hef að segja..
Farinn í kvöld kaffi...já mamma þegar að ég kem heim til Íslands að þá verður þú með kvöldkaffi...ekkert múður.
29september
Já það er mikið um veikindi hérna núna þetta er orðið hálfgert berklahæli. Kira liggur hérna uppí rúmi hjá mér og er að reyna að leggja sig, Beta er hálfslöpp líka, Doddi er eitthvað slappur líka. Hildur er búin að vera veik, ég fékk eitthvað smá kvef í síðustu viku en ég vona nú að þetta sé búið núna hjá mér.
Allavegana mikið búið að gerast síðan að ég bloggaði síðast enda meira en 20 dagar síðan ég bloggaði síðast.
Skólinn er búinn að vera mjög fínn undanfarnarvikur vorum í pressphotography í síðust viku og núna í næstu viku tekur við annar myndavélakúrs. Annar verður bilað að gera hjá mér núna næstu vikur í að taka myndir og prenta út og búa til portfólíu. Ég fer síðan til köben 14. okt og verð að rölta með portfólíuna mína. Vonandi næ ég einhverjum samning þar.
Annars er nú lítið annað merkilegt í fréttum svo sem, sem að flestir sem að lesa þetta vita ekki af. Annars er ég nú bara að blogga til að halda aðdáendum mínum glöðum.
05september
Ég er kominn í InDesign núna og það er alveg gríðarlega leiðinlegt forrit. Ég er búinn að vera hugsa alla vikuna um næstu viku og þá verður nú eitthvað skemmtilegt að gerast. Ég á þetta kannski bara skilið, ég er bara búinn að vera í skemmtilegu dóti fram til þessa. Einhvern tímann verður maður víst að gera þetta leiðinlega líka.
En ég ætla mér að fara til Köben 12 október og vera þar til 21 október að leita mér að ljósmyndara til að klára samningin hjá. Það verður örrugglega alveg gríðarlega skemmtilegt. Fæ vonandi að gista hjá Birnu frænku annars verður það bara garðurinn á Stengade. Er að vinna í því núna þessa dagana að klára að gera portfólíuna mína. Er að hugsa um að hafa hana svona 10-12 síður þarf ekkert að vera mikið lengri en það held ég.
Spurning hvort að maður eigi ekki að vera úber pró og búa sér til nafnspjöld. Alltaf fundist töff að vera með nafnspjöld.
Annars fór videokvöldið okkar eitthvað til fjandans á miðvikudaginn síðasta. Við náðum salnum í kvöld og það er Pusher í kvöld. Dönsk eðal mynd um heróín díl sem að vera eitthvað útum þúfur. Ég er orðinn mikill aðdándi danskra glæpamynda þessa dagana þær eru algjör eðall.